Regngalli



Vandaður pollagalli frá Ticket to Heaven með 8.000mm vatnsvörn. Jakkinn er bæði renndur og hnepptur og með hettu sem hægt er að fjarlægja. Buxurnar eru með axlaböndum í stærðum 80-110. Stærðir 116-128 koma sem mittisbuxur. Stillanleg teygjubönd eru á skálmum. Endurskin á baki, ermum og skálmum.











